Skip to main content
Kynning á eiginleikanum

Sannvottun á Mastodon

Sannvottun auðkenna á Mastodon er fyrir alla. Byggist á opnum vefstöðlum, frjálst og ókeypis, núna sem endranær.

Með áherslu á friðhelgi gagnanna þinna

Þú þarft ekkert að senda inn skjöl frá þér neins staðar, þannig að þá er engin hætta á að þeim sé lekið.

Fyrir alla

Þú þarft ekki að tilheyra fræga fólkinu til að sannreyna auðkennin þín. Þú þarft bara að eiga vefsvæði eða vefsíðu.

Dreifhýst

Það er engin þörf á að treysta miðlægu yfirvaldi. Sannvottun má staðfesta handvirkt hvenær sem er.

Það er ekkert blátt merki

Auðkenni er ekki spurning um já eða nei. Í heiminum eru í rauninni ekki svo mörg algerlega einstök nöfn, þannig að hvers vegna ættu bara þeir sem eru frægir að fá "já"? Á Mastodon reiðum við okkur ekki á lögformleg nöfn og blá merki. Í staðinn reiðum við okkur á þá staðreynd að fólk geti auðkennt sig með opinberum vefsvæðum sínum.

Svona gerum við

Settu tengil í notandasnið þitt á Mastodon inn á vefsvæðið þitt eða vefsíðu sem þú átt. Það mikilvægasta í þessu er að tengillinn þarf að innihalda rel="me" eigindi. Síðan skaltu breyta Mastodon notandasniðinu þínu og setja slóð vefsvæðisins eða vefsíðunnar inn í einn af fjórum reitum sem þar eru. Vistaðu notandasniðið og þá er það komið!